Stundarskrá íþróttastarfs haustönn 2021
Stundarskrá íþróttastarfsins fyrir haustönn 2021 liggur nú fyrir. Stundarskrána má finna á prentvænu formi inni á Félagsstarfið -> Stundarskrá Haust 2021
Stundarskrá íþróttastarfsins fyrir haustönn 2021 liggur nú fyrir. Stundarskrána má finna á prentvænu formi inni á Félagsstarfið -> Stundarskrá Haust 2021
Innritun á námskeið fyrir eldri borgara í Garðabæ haustönn 2021 er hafin. Skráning fer fram á klifid.is/namskeid/
Upplýsingar og ferðatilhögun vegna dagsferðar um Reykjanesið í september 2021.
FUNDARGERÐ AÐALFUNDAR FEBG 2021 Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ var haldinn í Jónshúsi mánudaginn 7. Júní 2021 kl. 13.30 Formaður félagsins, Stefanía Magnúsdóttir, setti fund og bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar, Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar og Helgi Pétursson, nýkjörinn formaður Landssambands eldri borgara. [...]
Í dag var Laufey Jóhannsdóttir kosin nýr formaður FEBG á mjög fjölmennum aðalfundi félagsins. Nýr í stjórn kosinn Finnbogi Alexandersson og í varastjórn Lára Kjartansdóttir.
Afsláttarbók LEB fyrir árið 2021 má finna hér: FEB_afslattarbok_2021
27.04.2020 Mál Gráa hersins gegn íslenska ríkinu þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur Þrír félagar úr Gráa hernum, baráttuhópi eldra fólks um lífeyrismál, hafa að beiðni og fyrir hönd samtakanna höfðað mál á hendur Tryggingastofnun f.h. íslenska ríkisins vegna skerðinga stofnunarinnar á ellilífeyri og heimilisuppbót á móti greiðslum frá lífeyrissjóðum. Málshöfðunin er reist á því sjónarmiði [...]
Fundargerð Aðalfundar FEBG 2020 Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ var haldinn í Jónshúsi mánudaginn 24.febrúar 2020 kl. 13.30. Formaður félagsins, Stefanía Magnúsdóttir, setti fund og bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landsambands eldri borgara, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Svanhildur Þengilsdóttir forstöðumaður stuðnings-og öldrunarþjónustu í Garðabæ. Formaður lagði til að [...]
Skýrsla stjórnar FEBG til aðalfundar 24. febrúar 2020 Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin til aðalfundar Félags eldri borgara í Garðabæ. Sérstaklega býð ég velkomna gesti fundarins sem eru Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara og Svanhildur Þengilsdóttir, forstöðumaður stuðnings- og öldrunarþjónustu bæjarins. Áður en við göngum til starfa [...]
Aðalfundur FEBG verður haldinn í Jónshúsi, Strikinu 6, mánudaginn 24. febrúar kl. 13:30. Venjuleg aðalfundarstörf Önnur mál Kaffiveitingar í boði félagsins.
Kvartett Kristjönu Stefánsdóttur – standardar í toppflutningi Laugardagur 27. apríl – Jónshús, Strikið 6, kl 14:00 Ein af okkar allra bestu jazzsöngkonum flytur hefðbundinn og aðgengilegan jazz ásamt fríðu föruneyti. Kristjana Stefánsdóttir: söngur, Tómas Guðni Eggertsson: píanó, Þórður Högnason: kontrabassi, Birkir Freyr Matthíasson: trompet Ókeypis aðgangur, allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Jazzhátíðin er haldin [...]
Skrifstofa FEBG er lokuð í dag, 10.apríl vegna landsþings Landssambands Eldri Borgara.
Skýrsla stjórnar FEBG til aðalfundar 4. mars 2019 Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin til aðalfundar Félags eldri borgara í Garðabæ. Sérstaklega býð ég velkomna gesti fundarins sem eru Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Þórunn Hulda Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara og Ingibjörg Valgeirsdóttir, framkvæmdastjóri málefna eldri borgara hér í bæ. Áður en við göngum [...]
Aðalfundur 4.mars 2019 Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ var haldinn í Jónshúsi mánudaginn 4.mars 2019 kl. 13.30. Formaður félagsins, Stefanía Magnúsdóttir, setti fund og bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru Ingibjörg Valgeirsdóttir, forstöðumaður félagsþjónustu Garðabæjar og Þórunn Sveinbjörnsdóttir formaður Landsambands eldri borgara. Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, sem var upptekin við önnur störf, bað [...]
Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ, haldinn þann 4. mars 2019 mótmælir harðlega þeim fáránlegu skerðingum sem viðgangast í almannatryggingakerfinu gagnvart lífeyri úr lífeyrissjóðum. Fundurinn skorar á stjórnvöld að endurskoða þessar skerðingar og færa til betri og réttlátari vegar.
Þriðjudaginn 12. mars byrja annað grunnnámskeið í tölvufærni. Þetta er 12 klst námskeið en kennt verður 12. 14. 19. og 21. mars frá kl 9:00 - 12:00 í Jónshúsi. Kennari er Einar Ísfjörð, sem fékk afbragðsdóma fyrir fyrra námskeiðið. Skráning og nánari upplýsingar í Jónshúsi en einnig er hægt að senda fyrirspurnir í netpósti til [...]
Fimmtudaginn 7. mars byrjum við með tilraunaverkefni sem er tölvuaðstoð fyrir félagsmenn í Jónshúsi.. Þórunn Óskarsdóttir mun aðstoða en það þarf að panta tíma á skrifstofu FEBG og gefa upplýsingar um tegund tækis ( sími, spjaldtölva eða fartölva ). Við erum með aðgang að tölvu í Jónshúsi fyrir þá sem vilja nota hana.
Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ verður haldinn mánudaginn 4. mars í Jónshúsi, Strikinu 6 kl 13:30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Kaffiveitingar í boði félagsins