Félagsaðild að Félagi Eldri Borgara í Garðabæ

Ef þú gerist félagi í FEBG færðu:

  • Þátttaka í mjög öflugu íþrótta- forvarnar og tómstundastarfi á vegum FEBG
  • Afslátt hjá hundruðum verslana og þjónustufyrirtækja
  • Hagstæð tilboð um ferðalög, innanlands og utan á vegum félagsins
  • Ókeypis blaðið Listin að lifa, félagsrit Landssambands eldri borgara

Þjónustubókin og appið á vegum LEB

Hægt er að nýta Þjónustubókina til að fá góðan afslátt hjá fjölda fyrirtækja. Í henni er listi yfir hundruðir verslana og þjónustufyrirtækja sem veita félagsmönnum FEBG afslátt.

Félagsgjald  FEBG er 3.000 kr. á mann á ári.   ( samþykkt á aðalfundi FEBG 27. febrúar 2023)

Skráðu þig í Félag Eldri Borgara í Garðabæ ef  þú ert 60+.

Gefa þarf upp nafn, kennitölu, heimilisfang, símanúmer og netfang ef til er.

Þú getur skráð þig í FEBG  með því að koma á skrifstofuna Stikinu 6 eða hringja í síma  á skrifstofutíma, sjá forsíðu.

Auðveldast er að skrá helstu upplýsingar beint inn á heimasíðuna  og senda til okkar beint af vefnum.

Þegar umsókn þín er móttekin af FEBG þá sendir bankinn greiðslubeiðni beint til þín í heimabankann. Þegar þú hefur greitt félagsgjaldið þá færðu sent FEBG félagsskírteinið og ert þar með skráð/ur í félagaskrá FEBG.