
Sumarferð um Hvalfjörð, Borgarfjörð, Reykholt og Akranes
Brottför miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9.00 frá Jónshúsi og Garðatorgi.
Farið kl. 9.00 frá Jónshúsi og í framhaldinu frá Garðatorgi. Ferið um Mosfellsbæ og yfir Kjósaskarðið. Fræðumst um sögu og menningu á slóðum Halldórs Kiljan Laxness í Mosfellsbæ. Ekið um Kjósaskarðið og yfir í Kjósina og áfram í Hvalfjörð.
Í Hvalferði verður fræðst um sögu Hernámsins, og um sögu hvalveiða og þess sem fyrir augun ber á leiðinni um Hvalfjörðinn. Ekið áfram og yfir Draghálsinn, um Skorradalinn, Hestháls og fáum hádegishressingu í Hvernum.
Þar á eftir verður ekið í Reykholt þar sem við fáum kynningu á staðnum og skoðum okkur um á einum af allra merkilegustu sögustöðum Íslands. Þá verður ekið um Borgarfjarðarhéröð eftir Borgarfjarðarbrautinni. Sem leið liggur um Hvalfjarðarsveit og um norðanvert Akrafjallið og á Akranes, Markverðustu staðir skoðaðir, Breiðin og Akranesviti. Komum við í Kallabakarí og fáum siðdegishressingu og í lokin sem leið liggur um Hvalfjarðargöng og í Garðabæ. Áætluð heimkoma í Garðabæ ca 17.30.
Verð er kr. 16.900. Innifalið er; rútuferðin, leiðsögn, hádegishressing, síðdegishressing og aðgangur að sögustöðum.
Sigurbergur Árnason er leiðsögumaður í ferðinni.
Skráning fer fram á: www.abler.io/shop/gardabaer/febg og með tölvupósti á febg@febg.is
*Félagið áskilur sér rétt til að fella niður einstakar ferðir vegna veðurs, ónógrar þátttöku eða af öðrum ástæðum. Verð geta breyst m.v. breyttar forsendur þegar líða tekur á sumarið



