Þriðjudaginn 12. mars byrja annað grunnnámskeið í tölvufærni. Þetta er 12 klst námskeið en kennt verður 12. 14. 19. og 21. mars frá kl 9:00 – 12:00 í Jónshúsi. Kennari er Einar Ísfjörð, sem fékk afbragðsdóma fyrir fyrra námskeiðið. Skráning og nánari upplýsingar í Jónshúsi en einnig er hægt að senda fyrirspurnir í netpósti til febg@febg.is.