Góugleði – Dansiball
Við ætlum að dansa og gleðjast föstudaginn 25. mars kl. 20. Pálmar Ólason og hljómsveit leika fyrir dansi og nú er um að gera að skella sér í fjörið og dansa.
Við ætlum að dansa og gleðjast föstudaginn 25. mars kl. 20. Pálmar Ólason og hljómsveit leika fyrir dansi og nú er um að gera að skella sér í fjörið og dansa.
Farið verður í tveggja daga ferð um Suðurland 17.-18. maí á vegum félags eldriborgara í Garðabæ.
Fræðsluerindi með Jóni Snædal öldrunarlækni fimmtudaginn 10. mars kl. 13:30 - 14:30 í Jónshúsi.
Aðalfundur félags eldriborgara í Garðabæ var haldinn 28. Febrúar sl. í Miðgarði (nýja fjölnota íþróttahúsinu í Vetrarmýri) Dagskrá var hefðbundin, aðalfundarstörf. Stefanía Magnúsdóttir var fundarstjóri og Lára Kjartansdóttir fundarritari. Laufey Jóhannsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar. Lagðir voru fram og samþykktir ársreikningar. Samþykkt að árgjaldið verði óbreytt 2.500 kr. Á næstu dögum verða greiðslubeiðnir um árgjald sendar til [...]
Opinberum sóttvarnaraðgerðum vegna Covid-19 hefur verið aflétt.
Félagsvist á vegum FEBG verður í Jónshúsi föstudaginn 18. febrúar kl. 13.00
Aðalfundur FEBG verður haldin mánudaginn 28. febrúar kl. 13:30 í Miðgarði.
Dansleikfimi á vegum FEBG byrjar föstudaginn 4. febrúar í Sjálandsskóla.
Skráning í íþróttastarf og tómstundastarf á vegum FEBG og Jónshúss 2022 er hafin á Sportabler.
Miðvikudaginn 8. des kl. 12:15 gleður Kristinn Sigmundsson gesti á hádegistónleikum í safnaðarheimili Vídalínskirkju (ath. breytt staðsetning).
Vegna aukinna smita í samfélaginu fellur söngstund í Jónshúsi tímabundið niður.
Gildandi takmarkanir í félagsmiðstöðvum fyrir fullorðna og í félagsstarfi aldraðra Gildandi takmarkanir (PDF) 10. nóvember – 8. desember 2021. Jónshús Hámarksheimild í Jónshúsi er 500 gestir alls. Hópastarf og viðburðir taka mið af gildandi takörkunum. Virða skal eins metra nálægðarmörk milli einstaklinga í sama rými svo og viðeigandi hámarksfjölda. Áfram skal gæta að einstaklingsbundnum [...]
Vantar þig aðstoð við tölvu, spjaldtölvu (iPad) eða síma?
Farið verður í ferð um Reykjanesið 27. september nk. Allar frekari upplýsingar um ferðina má finna undir félagsstarfið -> ferðir.
Ársskýrslu FEBG má nú finna undir Um Febg -> Skjalasafn
Stundarskrá íþróttastarfsins fyrir haustönn 2021 liggur nú fyrir. Stundarskrána má finna á prentvænu formi inni á Félagsstarfið -> Stundarskrá Haust 2021
Innritun á námskeið fyrir eldri borgara í Garðabæ haustönn 2021 er hafin. Skráning fer fram á klifid.is/namskeid/
Upplýsingar og ferðatilhögun vegna dagsferðar um Reykjanesið í september 2021.
FUNDARGERÐ AÐALFUNDAR FEBG 2021 Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ var haldinn í Jónshúsi mánudaginn 7. Júní 2021 kl. 13.30 Formaður félagsins, Stefanía Magnúsdóttir, setti fund og bauð félaga og gesti velkomna. Gestir fundarins voru Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Björg Fenger, forseti bæjarstjórnar, Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Garðabæjar og Helgi Pétursson, nýkjörinn formaður Landssambands eldri borgara. [...]
Í dag var Laufey Jóhannsdóttir kosin nýr formaður FEBG á mjög fjölmennum aðalfundi félagsins. Nýr í stjórn kosinn Finnbogi Alexandersson og í varastjórn Lára Kjartansdóttir.