Sumarferð á vegum FEBG: Suðurland – Þingvellir – Laugarvatn – Stöng – Urriðafoss – Vatnsholt – Selfoss
Ferð um Suðurland 28. Ágúst á vegum félags eldriborgara í Garðabæ
Brottför frá Jónshúsi kl. 09.00 og Garðatorgi kl 09.05. Ekið sem leið liggur frá Garðabæ um Suðurland. Mosfellsbær – Þingvellir /Hakið/Vellirnir verðum þar rétt um 10:00, hálftíma stopp
Kl: 11:00 -haldið áfram og ekið sem leið liggur um Vatnsvíkina og yfir Lyngdalsheiðina og komið á Laugarvatn þar sem við fáum hádegisverð
Kl: 12:50 er svo lagt af stað aftur og ekið sem leið liggur um Laugarvatn um Reykholt, um Hrunamannahreppinn og yfir í Þjósárdal þar sem við stoppum og skoðum hið sögufræga setur að Stöng, Þjóðveldisbæinn og hið fallega, sögufræga svið Íslandssögunnar.
Kl. 15:20 er lagt af stað og þá ekið um Þjósárdalinn og um sveitina, fylgjum sagnaslóðum um Hrunamannahrepp og Skeiða og Gnúpverjahrepp skoðum Þjórsárstofu sem er gestastofa og upplýsingamiðstöð, staðsett í Árnesi. Þar er meðal annars boðið uppá áhugaverða kvikmyndasýningu um Þjórsá, þar sem ánni er fylgt frá upptökum til ósa, og brugðið upp myndum úr næsta nágrenni hennar, staðháttum og mannlífi. Í Þjórsárstofu að finna mikið magn upplýsinga á gagnvirkum skjám, veggspjöldum og í bæklingum um þjónustu, sögu, náttúrufar, dýra- og mannlíf á svæðinu.
Kl. 16:25 er komið að Urriðafossi. Förum og virðum fyrir okkur þessa vatnsmiklu á og magnaða fossa í Urriðafossi.
Kl . 17:00 gerum við ráð fyrir að vera í Vatnsholti og höldum áfram og fáum ljúfengan kvöldverð á Selfossi kl. 18. 00 á Selfossi þar sem við gerum stans og förum svo sem leið liggur um Hellisheiðina og í Garðabæ.
Heimkoma er áætluð í Garðabæ kl. ca 20.30.
Fararstjóri í ferðinni er Sigurbergur Árnason leiðsögumaður.
Verð er kr. 17.990.
Innifalið í ferðinni er; Rúta, hádegisverður á Laugarvatni, aðgangur að söfnum og kvöldverður á Selfossi.