Vorferð á vegum FEBG
Farið verður í tveggja daga ferð um Suðurland 17.-18. maí á vegum félags eldriborgara í Garðabæ.
Brottför frá Jónshúsi kl. 9.00 og Garðatorgi kl 9.15. Ekið sem leið liggur frá Garðabæ um Suðurland. Við fáum dásamlega tómatasúpu og kaffi í hádeginu í Friðheimum. Við áætlum að skoða Skálholt. Þessu næst er ekið sem leið liggur á Hvolsvöll og við förum í safnaskoðun í Lava Centre – eldfjallasafnið. Þessu næst ekið á Selfoss og gisting í tveggja manna herbergi, þriggja rétta kvöldverður og morgunverður á Hótel Selfossi.
Næsta dag verður svo skoðunarferð um nágrennið. Kvöldverður í Hveragerði. Heimkoma er áætluð í Garðabæ kl. ca 20.30. Fararstjóri í ferðinni er Sigurbergur Árnason leiðsögumaður. Verð á mann er kr 29.200 og miðað er við gistingu í tveggja manna herbergi.
Innifalið; rúta, súpa og kaffi í Friðheimum, aðgangur Lava-center, gisting, kvöldverður og morgunverður á Hótel Selfossi, kvöldverður á heimleið og leiðsögn.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi 8.000 kr.
Athugið það þarf að bóka eins manns herbergið sérstaklega. Bókað er í ferðina í gegn um bókunarkerfið Sportabler.