Til félaga eldri borgara

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2023.
Syndum
 er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi með því að synda.
Átakið var formlega sett á laggirnar árið 2021 og fer nú fram í þriðja skipti. Í átakinu taka landsmenn sig saman og synda hringi í kringum Ísland og í fyrra náðist að leggja að baki 10.2 hringi í kringum landið.

Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land.

Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.
Síðustu ár hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að góð heilsa er ómetanleg

Syndum saman í kringum Ísland!
Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á heimasíðu Syndum.
Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn synda. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þeir sem hafa ekki aðgang að tölvu geta skráð metrana sína á skráningarblöð sem liggja í móttöku sundlauga.

Nokkrir heppnir þátttakendur verða dregnir út á meðan átakið stendur yfir og fá að launum góðar gjafir frá samstarfsaðilum.
Syndum er einnig á Facebook og Instagram og story-ið er afar skemmtilegt á meðan átakið stendur yfir. Það má merkja átakið með @syndum eða #syndum og þá er hægt að deila myndum og myndböndum frá þátttakendum.

Sjáumst í sundi!