Smellið á myndina til að skoða

Þér er boðið á kynningarfund

Efni: Fjölþætt heilsuefling 67+ í Garðabæ
Stund: Þriðjudagur 6. sep. kl. 16:15
Staður: Jónshús – Strikinu 6 – Garðabæ

Fjölþætt heilsuefling er verkefni á vegum Félags eldri borgara í Garðabæ (FEBG) og Janusar heilsueflingar. Verkefnið er fyrir einstaklinga 67 ára eða eldri sem eru með lögheimili í Garðabæ og eru félagar í FEBG.

Lagt er upp með markvissa þol- og styrktarþjálfun, reglubundnar heilsufarsmælingar, fræðslu og ráðgjöf um holla næringu og aðra heilsueflandi þætti. Markmið með þátttöku í verkefninu er að bæta afkastagetu og hreyfifærni þrátt fyrir hækkandi aldur. Einnig er markmiðið að gera einstaklinginn hæfari til að hægja á öldrunareinkennum með markvissri þjálfun svo hann geti meðal annars sinnt athöfnum daglegs lífs lengur og búið lengur í sjálfstæðri búsetu.

Samhliða þátttöku í þessu heilsueflingarverkefni er verið að óska eftir þátttakendum í vísindarannsókn á heilbrigðissviði. Dr. Janus Guðlaugsson PhD-íþrótta- og heilsufræðingur er ábyrgðarmaður rannsóknar og verkefnis.

Fjölþætt heilsuefling 67+ í Garðabæ inniheldur meðal annars:

  • Styrktarþjálfun með þjálfara í Gym-heilsu á Álftanesi 2x í viku
  • Þolþjálfun með þjálfara 1x í viku
  • Aðgangur að heilsu-appi Janusar heilsueflingar og þjálfunaráætlunum fyrir alla daga vikunnar Reglulegir fyrirlestrar frá læknum, næringarfræðingum,
  • sjúkraþjálfurum og öðrum sérfræðingum Ítarleg heilsufarsmæling á 6 mánaða fresti hjá Janusi heilsueflingu
  • Rafrænir heilsupistlar og annar fróðleikur um hollan lífsstíl
  • Aðgangur að lokuðum Facebook hópi með fróðleik og heilsutengdum stuðning
  • Aðgangskort í Gym-heilsu

Auglýsing á PDF