Kynning þann 5. febrúar kl. 14:00 á ferðum á vegum FEBG árið 2026
Kynning á ferðum á vegum FEBG árið 2026 verður haldin í Jónshúsi fimmtudaginn 5. febrúar 2026 kl. 14:00.
Aðalfundur FEBG þann 26. febrúar 2026 kl. 13.30
Aðalfundur Félags Eldri borgara í Garðabæ verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar 2026 kl. 13.30 í Jónshúsi.
Skotlandsferðakynning – Glærur frá kynningu
Kynning á Skotlandsferð 2 – 6. September 2026 fór fram í Jónshúsi 22 janúar. Mikill áhugi er fyrir ferðinni og hér má sjá glærur frá kynningunni.
Skotlandsferðakynning – 22. janúar í Jónshúsi
Kynning á ferð til skotlands með FEBG til Edinborgar dagana 2 - 6 september 2026. Kynningin hefst kl. 14:30 í Jónshúsi.
Þorrablót FEBG 2026 – Laugardaginn 24. janúar
Þorrablót FEBG verður haldið laugardaginn 24. janúar kl. 19:00 í Jónshúsi. Húsið opnar kl. 118:30. Þorramatur frá Múlakaffi. Verð kr. 10.000.
Netöryggi fyrir eldra fólk – kynning 29. janúar
Fimmtudaginn 29.janúar kl.13:30 fáum við heimsókn í Jónshús en þá mun Eva Valdís Jóhönnudóttir, sérfræðingur á Svikavakt Íslandsbanka, fara yfir einföld en skilvirk netöryggisráð sem má beita til að verjast netsvikum. Einnig verður fjallað um Auðkenni, rafrænu skilríkin og auðkennisappið.
Jólakveðja FEBG
Félagið sendir félögum sínum og Garðbæingum öllum bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á árinu 2026.
Þorrablót FEBG 2026 – Takið daginn frá!
Þorrablót FEBG 2026 verður haldið laugardaginn 24. janúar kl. 19:00. Takið daginn frá, nánari upplýsingar koma síðar.
Námskeið í Smiðjunni Kirkjulundi – Vor 2026
Skráning er hafin á Abler á námskeið sem haldin verða í Smiðjunni Kirkjulundi á vorönn 2026. Gler, trésmíði, postulínsmálun, leirlist og listmálun - eitthvað fyrir alla. Vertu með!
Skötuveisla í Jónshúsi
Skötuveisla verður í Jónshúsi 22. desember. Tvær tímasetningar í boði. Í boði verður skata og saltfiskur með kartöflum, rófum og hamsatólg ásamt rúgbrauði og smjöri. Ris a la mande með kirsuberjasósu í eftirrétt. Verð kr. 3.400. Skráning fer fram í ABLER og hefst 1. desember og lýkur mánudaginn 16. desember.
Jóladagskrá Jónshúss og FEBG
Jóladagskrá Jónshúss og FEBG stendur yfir frá 28. nóvember til og með 22. desember. Fjölbreytt dagskrá og mikið um að vera.
Jólahlaðborð FEBG í Jónshúsi 6 desember
Jólamatur a la Jói og Garðar í Jónshúsi. Jólahugvekja og frábær tónlistaratriði. Skráning er opin til 1. desember.
Fögnum fullveldisdeginum 1. desember í Jónshúsi
Fögnum saman í Jónshúsi kl. 15:00 - 16:00. Ávarp, upplestur og tónlist. Kaffi og með því. Njótum samverunnar.
Abler – leiðbeiningar
Hér er að finna handhægar leiðbeiningar til þess að setja upp Abler á GSM síma.
Hátíðarmessa sunnudaginn 9. nóvember kl. 11 í Vídalínskirkju
Í tilefni af útgáfu ævisögu séra Braga Friðrikssonar er ykkur boðið til hátíðarmessu sunnudaginn 9. nóvember kl. 11:00 í Vídalínskirkju.
Fræðslufundur í Jónshúsi 12. nóvember kl. 16:00 – Janus heilsuefling
Janus Guðlaugsson, Phd Íþrótta- og heilsufræðingur fræðir okkur um líkamshreystibil öldrunar, sarcopenia - hægfara vöðvarýrnun og RM-kerfið í styrktarþjálfun.
Veitingar í Jónshúsi
Jónshús er opið alla virka daga kl. 08:00 - 16:00. Þar er boðið upp á veitingar allan opnunartímann.
Haustfagnaður FEBG 25. október kl. 19:30
Haustfagnaður FEBG verður haldinn í Jónshúsi laugardaginn 25. október kl. 19:30. Húsið opnar kl. 19:00. Miðaverð kr. 4.500.
Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu 4. desember kl. 20.00
FEBG efnir til ferðar að sjá Moulin Rouge - Rauðu mylluna í Borgarleikhúsinu, fimmtudaginn 4. desember kl. 20. Ganga þarf frá miðakaupum fyrir 20. október. Miðaverð er kr. 13.900.
ChatGPT gervigreind – Hvað er það?
Tveggja tíma kynning á því hvað ChatGPT er og ýmis atriði sem gætu hjálpað í daglegu lífi og hvernig hægt er að nýta gervigreindina til gamans eða í eigin verkefnum.



















