Sumarferð  um Hvalfjörð,  Borgarfjörð, Reykholt og Akranes

Brottför miðvikudaginn 19. ágúst kl. 9.00 frá Jónshúsi og Garðatorgi.

Farið kl. 9.00 frá Jónshúsi og í framhaldinu frá Garðatorgi. Ferið  um Mosfellsbæ og yfir Kjósaskarðið.  Fræðumst um sögu og menningu á slóðum Halldórs Kiljan Laxness í Mosfellsbæ. Ekið um Kjósaskarðið og yfir í Kjósina og  áfram í Hvalfjörð.

Í Hvalferði verður fræðst um sögu Hernámsins,  og  um sögu hvalveiða og þess sem fyrir augun ber á leiðinni um Hvalfjörðinn. Ekið áfram og yfir Draghálsinn, um Skorradalinn, Hestháls og fáum hádegishressingu í Hvernum.

Þar á eftir verður ekið  í Reykholt þar sem við fáum kynningu á staðnum og skoðum okkur um á einum af allra merkilegustu sögustöðum Íslands.  Þá verður ekið um Borgarfjarðarhéröð eftir Borgarfjarðarbrautinni. Sem leið liggur um Hvalfjarðarsveit og  um norðanvert Akrafjallið og á Akranes, Markverðustu staðir skoðaðir,  Breiðin og Akranesviti.  Komum við í Kallabakarí og fáum siðdegishressingu og í lokin sem leið liggur um Hvalfjarðargöng og í Garðabæ. Áætluð heimkoma í Garðabæ ca 17.30.

Verð er kr. 16.900. Innifalið er;  rútuferðin, leiðsögn, hádegishressing, síðdegishressing og aðgangur að sögustöðum.

Sigurbergur Árnason er leiðsögumaður í ferðinni.

Skráning fer fram á:  www.abler.io/shop/gardabaer/febg og með tölvupósti á febg@febg.is

*Félagið áskilur sér rétt til að fella niður einstakar ferðir vegna veðurs, ónógrar þátttöku eða af öðrum ástæðum.  Verð geta breyst m.v. breyttar forsendur þegar líða tekur á sumarið