Félagsskírteini FEBG 2026 – stafræn eða í plasti

Ágætu félagar,
Nú eru mjög margir félagar búnir að greiða árgjaldið fyrir 2026. Ný stafræn félagsskírteini ættu að hafa verið send til þeirra sem greitt hafa árgjaldið, þeir sem hafa ekki fengið ný stafræn skírteini eða geta ekki nýtt sér þau eru beðnir að hafa samband við skrifstofu FEBG með því að senda tölvupóst á febg@febg.is eða með því að hafa samband við skrifstofuna, annað hvort með því að koma eða hringja í síma: 565 -6627 á opnunartímum sem eru: þriðjudagar og fimmtudagar frá 10.00 – 13.00 (ath breyttur tími) og á miðvikudag kl. 13.30 – 15.30.

Skrifstofa FEBG verður lokuð vegna sumarleyfa frá 23. júní til 11. ágúst.

Tilkynning á PDF.