INNANLANDSFERÐIR á vegum FEBG árið 2025
Vestfirðir 3-6 júní 2025
ATH: FERÐ UM VESTFIRÐI HEFUR VERIÐ FELLD NIÐUR VEGNA ÓNÓGRAR ÞÁTTTÖKU.
Fjallabaksleið nyrðri 21. Ágúst.
Dagsferð um Fjallabaksleið nyrðri með brottför klukkan 8:00 úr Garðabæ . Fyrsti viðkomustaður er í Þjórsárdal. Þaðan verður ekið rakleiðis inn í Landmannalaugar, þar sem gestir taka upp nesti og skoða sig um á þessu einstaka landsvæði. Næst verður haldið um Jökuldali og Eldgjá í Hólaskjól. Síðan verður ekið niður Skaftártungu og um Vík. Við fáum kvöldverð í Vík áður en haldið verður til Garðabæjar. Um nokkuð langa ferð er að ræða og ekið um hálendisvegi yfir ár og læki. Þetta er ekki mikil gönguferð en þátttakendur þurfa að vera vel búnir fyrir hálendisferð.
Leiðsögumaður: Sigurbergur
Verð; 20.900 innifalið er rúta, leiðsögn, hádegishressing og kvöldverður.
Styttir dagsferð um Suðurströnd 3. september.
Brottför frá Jónshúsi kl. 11. Ekið sem leið liggur um Suðurstrandaveg, komið við í Strandarkirkju, á Eyrarbakka þar sem við fáum okkur súpu í Rauðahúsinu, komið við á Stokkseyri og endað í Þorlákshöfn áður en ekið er um Þrengslin og í Garðabæ .
Leiðsögumaður: Sigurbergur
Verð; 9.500 kr; innifalið er rúta, leiðsögn, hádegishressing .
*Félagið áskilur sér rétt til að fella niður einstakar ferðir vegna veðurs, ónógrar þátttöku eða af öðrum ástæðum. Verð geta breyst m.v. breyttar forsendur þegar líða tekur á sumarið.
Áhugasamir sendið tölvupóst á: febg@febg.is.



