Aðalfundur Félags Eldri borgara í Garðabæ fyrir árið 2022 verður haldinn mánudaginn 27. febrúar 2023 kl. 13.30 í félagsmiðstöð Eldri borgara Jónshúsi að Strikinu 6.
Dagskrá fundarins;
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
- Ársreikningur lagður fram til umræðna og afgreiðslu.
- Fjárhagsáætlun næsta starfsárs kynnt.
- . Ákvörðun árgjalds.
- Lagabreytingar.
- Kosningar:
- a) kosning formanns
- b) kosning fjögurra manna í stjórn
- c) kosning þriggja varamanna
- d) kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga FEBG og eins til vara, allra til eins árs.
- Önnur mál.
Á fundinum verða lagðar fram lagfæringar á lögum FEBG til samræmis við lög Landssambands eldri borgara. Upplýsingar um þessar lagfæringar munu liggja frammi á skrifstofunni og í Jónshúsi frá 13. febrúar.
Stjórn FEBG