Gildandi takmarkanir í félagsmiðstöðvum fyrir fullorðna og í félagsstarfi aldraðra
10. nóvember – 8. desember 2021.
Jónshús
- Hámarksheimild í Jónshúsi er 500 gestir alls.
- Hópastarf og viðburðir taka mið af gildandi takörkunum. Virða skal eins metra nálægðarmörk milli einstaklinga í sama rými svo og viðeigandi hámarksfjölda.
- Áfram skal gæta að einstaklingsbundnum sóttvörnum ss. handþvotti og handsprittun.
- Grímuskylda er við komu í Jónshús og þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra nálægðarreglu. Grímuskylda er einnig á sitjandi viðburðum.
- Athugið að ekki má koma í félagsstarfið ef einstaklingar:
- Eru í sóttkví.
- Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).
- Hafa verið í einangrun vegna Covid-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá því að einangrun lauk.
- Eru með einkenni sem gætu bent til Covid -19 smits; Hósta, hálssærindi, mæði, niðurgang, uppköst, hita, höfuðverk, kviðverki, beinverki eða þreytu.
- Spil eru leyfð á borðum, en nota skal grímu ef ekki er hægt að virða eins metra nálægðarreglu.
Matur í Jónshúsi:
- Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 512-1501. Maturinn kemur í bökkum sem hægt er að borða á staðnum eða taka með sér.
Heimsendur matur:
- Boðið er upp á heimsendan mat fyrir þá sem af heilsufarsástæðum geta hvorki annast matseld sjálfir né komist ferða sinna hjálparlaust til innkaupa. Pantanir á heimsendum mat eru í síma 512-1500 á milli kl. 08-16.00 alla virka daga.
Opið er í Smiðjunni – fylgja skal gildandi takmörkunum vegna Covid 19
Opið er í Litlakoti – fylgja skal gildandi takmörkunum vegna Covid 19