Lög Félags eldri borgara í Garðabæ

Skoða sem PDF

1.gr.
Félagið heitir: Félag eldri borgara í Garðabæ, skammstafað FEBG.

2.gr.
1.mgr. Heimili þess og varnarþing er í Garðabæ.
2.mgr. Félagið er óháð stjórnmálum og hlutlaust í trúmálum.
3.mgr. Félagið er aðili að Landssambandi eldri borgara, LEB.

3.gr.
Markmið þess eru:
Að vinna að úrbótum í húsnæðismálum eldri borgara í samvinnu við bæjaryfirvöld.
Að hlutast til um aðstöðu fyrir ýmiss konar starfsemi félagsins.
Að efla tengsl þeirra, sem óska aðstoðar og hinna, sem geta og vilja veita hana.
Að hlúa að hvers konar áhugamálum félagsmanna, standa fyrir námskeiðum, fræðslufundum, hópavinnu, tómstundavinnu og skemmtunum.
Að stuðla að líkamsþjálfun og útivist.
Að leitast við að hafa áhrif á lagasetningu og ákvarðanir, sem varða hagsmuni aldraðra, með viðræðum og samningum við stjórnvöld.
Að vera í nánu samstarfi við bæjaryfirvöld í Garðabæ um hvers konar málefni er varða heill og hag eldri borgara.

4.gr.
Skilyrði til félagsaðildar:
1.mgr. Rétt til að gerast félagi eiga þau sem náð hafa 60 ára aldri og einnig makar þeirra þó yngri séu.
2.mgr. Félagsgjald skal ákveða á hverjum aðalfundi fyrir komandi almanaksár og má því aðeins breyta á aðalfundi.
3.mgr. Við inngöngu í félagið skal greiða innskráningargjald sem jafngildir upphæð félagsgjalds yfirstandandi árs.
4.mgr. Félagar 90 ára og eldri greiða ekki félagsgjöld.

5.gr.
Aðalfundur:
1.mgr. Aðalfundur er æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda ár hvert í febrúar eða mars og skal boða til hans með auglýsingu í húsnæði félagsins og á samfélagsmiðlum með minnst viku fyrirvara.
2.mgr. Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi og þarf tvo þriðju hluta atkvæða til, enda hafi tillagna um breytingar á lögum verið getið í fundarboði og þær legið frammi í húsnæði félagsins og kynntar á samfélagsmiðlum eigi skemur en tveimur vikum fyrir aðalfund.
3.mgr. Að öðru leiti ræður einfaldur meirihluti atkvæða úrslitum mála á aðalfundi.
4.mgr. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.

6.gr.
Dagskrá aðalfundar er:
1.mgr. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2.mgr. Skýrsla stjórnar.
3.mgr. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið ár.
4.mgr. Umræða um skýrslu stjórnar og framlagða reikninga.
5.mgr. Ákvörðun félagsgjalds.
6.mgr. Lagabreytingar.
7.mgr. Kosning formanns.
8.mgr. Kosning aðalstjórnar og varastjórnar9.mgr. Kosning tveggja skoðunarmanna og eins til vara.10.mgr. Önnur mál.

7.gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 félögum og 3 til vara sem kosnir eru á aðalfundi félagsins samkvæmt eftirfarandi reglum: Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn. Fjórir meðstjórnendur skulu kosnir til eins árs í senn. Á aðalfundi skal einnig kjósa til eins árs í senn, þrjá félaga í varastjórn, tvo skoðunarmenn til eins árs og einn til vara. Enginn má sitja lengur í stjórn en fimm ár. Formaður getur þó hafa setið í stjórn áður, án þess að fimm ára reglan gildi en má ekki sitja lengur en fimm ár sem formaður. Þau sem sinna trúnaðarstörfum fyrir félagið skulu vera fullgildir félagar í Félagi eldri borgara í Garðabæ.

8.gr.
1.mgr. Formaður er forsvarsmaður félagsins. Hann kallar saman stjórnarfundi og stjórnar þeim og boðar til félagsfunda eftir ákvörðun stjórnar. Varaformaður er staðgengill formanns. Formaður skal boða bæði aðalmenn og varamenn. Varamenn hafa á stjórnarfundum málfrelsi og tillögurétt en ekki atkvæðisrétt.
2.mgr. Fundum skal stjórnað samkvæmt almennum fundarsköpum.
3.mgr. Á fyrsta fundi eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér verkum þannig að í aðalstjórn séu kosnir varaformaður, gjaldkeri og ritari.
4.mgr. Ritari heldur rafræna gerðabók og færir í hana ágrip af því sem á fundum gerist og allar ályktanir funda. Einnig ferðir og aðrar athafnir félagsins.
5.mgr. Stjórn félagsins ber ábyrgð á fjárreiðum þess og skuldbindur það gagnvart öðrum aðilum. Öll meiriháttar mál skal bera undir félagsfund. Gjaldkeri hefur yfirumsjón með öllum fjárreiðum félagsins, þar á meðal innheimtu félagsgjalda og greiðslu reikninga. Hann skal fyrir aðalfund ár hvert gera eða láta gera reikningsyfirlit um hag félagsins og sjá til þess að ársreikningur sé skoðaður. Gjaldkeri skal eigi sjaldnar en á þriggja mánaða fresti gefa stjórn bráðabirgðayfirlit yfir stöðu félagsins.
6.mgr. Innan stjórnar er heimilt að skipa starfshópa og þá með samþykki allra stjórnarmanna.
7.mgr. Reikningsár félagsins er almanaksárið.

9.gr.
Félagsfundir:
1.mgr. Stjórn ákveður félagsfundi og skulu þeir haldnir svo oft sem þurfa þykir.
2.mgr. Ef minnst 5% fullgildra félaga óska þess skriflega og tilgreina fundarefni skal boða til félagsfundar innan tíu daga frá móttöku beiðninnar.
3.mgr. Til félagsfunda skal boða með minnst viku fyrirvara með auglýsingum í húsnæði félagsins og á samfélagsmiðlum.

10.gr.
Nú kemur fram tillaga um að félaginu sé slitið. Skal hún þá sæta sömu meðferð og tillaga um breytingar á lögum, bæði í fundarboði og afgreiðslu á aðalfundi. Við slit félagsins skulu eignir þess renna til almennra hagsmunamála eldra fólks í Garðabæ.

11.gr.
Lög þessi öðlast gildi á aðalfundi 6. mars 2025.
Með samþykkt þessara laga falla eldri lög úr gildi.