Kynning í Jónshúsi – Netöryggi fyrri eldra fólk

Fimmtudaginn 29.janúar kl.13:30 fáum við heimsókn í Jónshús en þá mun Eva Valdís Jóhönnudóttir, sérfræðingur á Svikavakt Íslandsbanka, fara yfir einföld en skilvirk netöryggisráð sem má beita til að verjast netsvikum. Stiklað verður á stóru, frá því hvernig má bera kennsl á vafasamar netverslanir, smáskilaboð og fjárfestingar yfir í hvernig er hægt að efla fjárhagslega heilsu með góðum netöryggisvenjum.

Einnig verður fjallað um Auðkenni, rafrænu skilríkin og auðkennisappið.