INNANLANDSFERÐIR á vegum FEBG árið 2026

Skoða PDF

Vestfirðir  25. – 28. maí 2026

Fjögurra daga ferð. Lagt af stað úr Garðabæ klukkan 9, sem leið liggur um Borgarfjörð og á Strandir.

Komið við á Sauðfjársetrinu á Ströndum á Hólmavík þar sem hópurinn getur skoðað sýninguna sem tengd er sauðfjárbúskap, mannlífi og menningu á Ströndum og fengið sér hressingu. Þaðan er ekið yfir Steingrímsfjarðarheiði og um Ísafjarðardjúp. Komið við á áhugaverðum stöðum á leiðinni til Ísafjarðar og gist í tvær nætur á hótel Ísafirði. Ísafirði. Kvöldverður á hótelinu.

Daginn eftir er ekið til Bolungarvíkur og komið á Bolafjallið ef veður leyfir. Ekið til baka og yfir í Súðavík og Melrakkasetur Íslands skoðað. Komið við í Raggagarði og ekið um Súðavík. Komið til baka til Ísafjarðar og frjáls tími til að skoða Ísafjarðarkaupstað. Kvöldverður á hótelinu.

Daginn eftir er svo haldið suður á leið. Fyrsti viðkomustaður er Flateyri, síðan Þingeyri og svo Dynjandi. Þaðan förum við svo yfir Dynjandisheiði. Leiðin liggur svo sem leið liggur á Patreksfjörð. Gistum á Hótel West. Við ráðgerum að fara út á Látrabjarg og virða fyrir okkur fuglalífið og hrikaleika bjargsins.

Kvöldverðurinn er svo á Hótel West. Næsta dag að afloknum morgunverði er tími til að litast um á Patró áður en haldið er á Barðaströndina fyrir fjarðarbotnana og um umtalaðan veg í Teigsskógi og yfir nýju brúna í Þorskafirði og um Dalina . Við njótum þess svo að ferðast um Dalina og svo yfir Bröttubrekku og í Borgarfjörðinn og suður í Garðabæ . Lágmarksþátttaka 25 manns.

Verð 129.900 á mann innifalið; rúta, gisting og morgunverður 3 nætur, kvöldmatur 4 kvöld. Miðað við gistingu í í tveggja m herbergi .

Staðfestingargjald: 15.000 kr. og fæst það ekki endurgreitt.

—–

Þórsmörk 11. júní.

Dagsferð í Þórsmörk. Brottför klukkan 9:00 úr Garðabæ . Fyrsti viðkomustaður er Hvolsvöllur. Þaðan verður ekið sem leið liggur um Markarfljótseyrarnar og í Bása. Básar eru í Goðalandi sunnan megin Krossár en Langidalur er norðan megin Krossár en allt þetta svæði er í daglegu tali kallað Þórsmörk.

Þar verður snæddur hádegishressing og gott tækifæri til að skoða sig um á þessu einstaka landsvæði. Við fáum kynningu á svæðinu og farið verður í góða göngu á svæðinu. Og þurfa þátttakendur að vera vel útbúnir til útivistar og gönguferða.

Að aflokinni dvölinni í Þórsmörk er haldið aftur á Markarfljótseyrar og á heimleið er ekið um Fljótshlíðina og að sjálfsögðu er ýmislegt rifjað upp um sögusvið Njálu. Áætluð heimkoma í Garðabæ kl. 20.30.

Lágmarksþátttaka 25 manns.
Leiðsögumaður: Sigurbergur Árnason

Verð; 20.500 innifalið er rúta, leiðsögn, hádegishressing og kvöldverður. Staðfestingargjald: 5.000 kr. og fæst það ekki endurgreitt.

—–

Kerlingarfjöll 27. ágúst.

Hálendisferðin þetta árið er í Kerlingarfjöll og inn á Hveravelli á söguslóðum Höllu og Fjalla- Eyvindar Lagt af stað úr Garðabæ kl. 8,30 að morgni og ekið sem leið liggur að Gullfossi, áfram inn á Kjalveg og að Hveravöllum. Gengið um hverasvæðið og rifjuð upp frásögnin af FjallaEyvindiog Höllu. Snæddur léttur hádegisverður. Næst liggur leiðin í Kerlingarfjöll og við göngum um svæðið og njótum litadýrðar náttúrunnar. Þátttakendur þurfa að vera vel útbúnir til gönguferða og vanir göngu í umhverfi sem þessu. Þarna er gengið upp og niður göngustíga sem hafa verið lagðir á undanförnum árum. Næst verður haldið suður á bóginn á ný með viðkomu á Geysi, þar sem við fáum kvöldverð og að loknum kvöldverði er ekið sem leið liggur um Laugarvatn, Þingvelli og heim í Garðabæ. Áætluð koma í Garðabæ er um kl. 21.30 Lágmarksþátttaka 25 manns.

Um nokkuð langa ferð er að ræða og ekið um hálendisvegi yfir ár og læki. Þetta nokkur gönguferð en þátttakendur þurfa að vera vel búnir fyrir hálendisferð.

Leiðsögumaður: Sigurbergur Árnason.

Verð; 20.900 innifalið er rúta, leiðsögn, hádegishressing og kvöldverður. Staðfestingargjald: 5.000 kr. og fæst það ekki endurgreitt.

—–

Dagsferð um Stór – Reykjavíkursvæðið 8. september.

Brottför frá Jónshúsi kl. 11. Ekið sem leið liggur um Garðabæ, Hafnarfjörð og til Reykjavíkur. Markverðustu staðir skoðaði og komið við hjá Hörpunni, í Öskjuhlíðinni, ekið um vesturbæ og út á Granda þar sem við fáum hádegishressingu. Ekið um Grafarvog og Úlfarsárdal áður en ekið er aftur og í Garðabæ . Áætluð heimkoma í Garðabæ kl. 17.00.

Leiðsögumaður: Sigurbergur Árnason.

Verð; 9.500 kr; innifalið er rúta, leiðsögn, hádegishressing .

 

*Félagið áskilur sér rétt til að fella niður einstakar ferðir vegna veðurs, ónógrar þátttöku eða af öðrum ástæðum. Verð geta breyst m.v. breyttar forsendur þegar líða tekur á sumarið.