
GKG og FEBG í samstarf – Púttnámskeið og Stöðvaþjálfun í Trackman í Kórnum í Kópavogi
Nú er að koma nýr Púttvöllur í nágrenni Jónshúss sem vonandi verður tilbúinn í vor. Af því tilefni ætlar FEBG í samstarfi við GKG, Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar að bjóða upp á púttnámskeið í aðstöðu GKG í Kórnum í Kópavogi. Hágmarksþáttta í púttnámskeiðinu er 15 manns á hverju námskeiði en lágmarksþátttaka 10 manns. Gjaldið m.v. lágmarksþátttöku er kr. 25.000 fyrir átta vikur. Getur lækkað ef fjöldinn er meiri.
Einnig verður í boði:
Námskeið sem sett er upp sem stöðvaþjálfun í TrackMan og á pútt og vippsvæði. Settar eru upp stöðvar sem mæla getu kylfings allt frá púttum og til teighögga.
Farið verður yfir öll helstu atriði golfsins, pútt, vipp, járn, brautarhögg, teighögg og driver, skoðum kylfuhraða og önnur tækniatriði og próf sem TrackMan býður upp á. Einnig mun Hlöðver Guðnason golfkennari sinna hverjum og einum þegar við á. Athugið að námskeiðið er hugsað sem stöðvarkennsla og hópkennsla frekar en einkakennsla.
Hágmarksþáttta er 12 manns á hverju námskeiði en lágmarksþátttaka 8 manns Gjaldið m.v. lágmarksþátttöku er kr. 30.000 fyrir átta vikur. Getur lækkað ef fjöldinn er meiri.
Námskeiðin byrja í Kórnum 24. febrúar n.k.
Látið vita um áhuga með tölvupósti á netfangið: febg@febg.is áður en skráð verður í abler kerfið
Ítarlegri upplýsingar er að finna hér: https://febg.is/frettir/gkg-febg-i-samstarf/.



