GKG og FEBG í samstarf – Púttnámskeið og Stöðvaþjálfun í Trackman í Kórnum í Kópavogi
Nú er að koma nýr Púttvöllur í nágrenni Jónshúss sem vonandi verður tilbúinn í vor. Af því tilefni ætlar FEBG í samstarfi við GKG, Golfklúbb Kópavogs og Garðabæjar að bjóða upp á púttnámskeið í aðstöðu GKG í Kórnum í Kópavogi. Farið er yfir helstu atriði sem góður púttari þarf að kunna skil á s.s grip, staða, púttsveifla, stefnustjórnun og lengdarstjórnun, halli flatar o.fl. Fyrstu 2-3 tímarnir eru frekari kennsla og færni í púttum.
Aðrir tímar eru síðan pútthringir og púttkeppni og fá kylfinga til að spila saman og hafa gaman.
Hágmarksþáttta í púttnámskeiðinu er 15 manns á hverju námskeiði en lágmarksþátttaka 10 manns.
Kennt verður einu sinni í viku á mánudögum kl. 11 – 12 Hver tími er 60 mínútur og kennt verður í aðstöðu GKG í Kórnum í Kópavogi.
Gjaldið m.v. lágmarksþátttöku er kr. 25.000 fyrir átta vikur. Getur lækkað ef fjöldinn er meiri.
Einnig verður í boði:
Námskeið sem sett er upp sem stöðvaþjálfun í TrackMan og á pútt og vippsvæði. Settar eru upp stöðvar sem mæla getu kylfings allt frá púttum og til teighögga.
Allar æfingar og skor á hverri stöð er hægt að skrá, þannig að hver og einn sér fljótlega hvar styrkleikar og veikleikar eru á hverju sviði.
Einnig er möguleiki á að vera með nokkrar styrktaræfingar sem tengjast golfasveiflunni.
Farið verður yfir öll helstu atriði golfsins, pútt, vipp, járn, brautarhögg, teighögg og driver, skoðum kylfuhraða og önnur tækniatriði og próf sem TrackMan býður upp á.
Einnig mun golfkennarinn sinna hverjum og einum þegar við á. Athugið að námskeiðið er hugsað sem stöðvarkennsla og hópkennsla frekar en einkakennsla.
Með tímanum sést hvað þarf sérstaklega að bæta og Hlöðver Guðnason golfkennari kemur með leiðréttingu og hvað þarf að bæta.
Það er æskilegt að vera kominn með TrackMan appið og nota það við innskráningu og æfingar. TrackMan geymir allar æfingar og spil og gott að skoða það og hvað þarf að laga.
Hágmarksþáttta er 12 manns á hverju námskeiði en lágmarksþátttaka 8 manns
Kennt verður einu sinni í viku á mánudögum kl. 10 – 11. Hver tími er 60 mínútur og kennt verður í aðstöðu GKG í Kórnum í Kópavogi. Gjaldið m.v. lágmarksþátttöku er kr. 30.000 fyrir átta vikur. Getur lækkað ef fjöldinn er meiri.
Látið vita um áhuga með tölvupósti á netfangið: febg@febg.is áður en skráð verður í abler kerfið.



