Borgarferð til Berlínar, 27 – 31  ágúst 2025.

Fáar borgir eru með jafn mikla sögu og Berlín.  Mörg hverfi sem öll hafa sín sérkenni, bæði í austur og vestur Berlín.  Fallegar byggingar, óperur, konserthús þam Berlínar Philharmonían, fjölmörg veitingahús o.fl o.fl.

27.ágúst   Flogið frá Keflavík til Berlínar með flugi PLAY kl. 06.00 og lent í Berlin  11:30.   Ekið rakleitt  á hotel Park Inn  sem er eins vel staðsett eins og nokkurt hotel getur verið í Berlín. Park Inn er á miðju Alexanderplatz og þar eru allar helstu verslanir Berlínar.  Afbragðs veitingahús eru allt um kring sem og krár og knæpur.  Eftir að farþegar hafa komið sér fyrir á hóteli þá er stuttur göngutúr um nærumhverfi hótelsins með fararstjóra, Lilju Hilmarsdóttur.  Sameiginlegur kvöldverður á hótelinu.

28.ágúst   Eftir morgunverð er lagt af stað í 4 klukkustunda skoðunarferð um Berlín þar sem  mark-verðustu staðir eru skoðaðir. Við kynnumst stórveldistíma Berlínar eftir sameiningu þýsku ríkjanna undir stjórn Bismarcks, fyrri heimsstyrjöldinni, Weimar lýðveldinu, uppgangi Nasismans, seinni heimsstyrjöldinni, kalda stríðinu, múrnum og  sameiningu Berlínar og falli múrsins 1989 o.fl.  Við ökum fram hjá kennileitum tengdum hinni viðamiklu sögu Berlínar eins og Potsdamer Platz, Kurfürstendamm, gyðingahverfinu, Brandenburger hliðinu o.s.frv.  Um kvöldið er farið sameiginlega út að borða á Hofbrauhaus, sem er með lifandi tónlist og er staðsett í nágrenni ParkInn.

29.ágúst   Eftir morgunverð er í boði gönguferð um elsta hluta Berlínar, uþb 1,5-2 klst.   Eftir það er dagurinn og kvöldið frjálst.

30.ágúst   Farið til Potsdam að loknum morgunverði.  Ógleymanleg upplifun að kynnast Cecilienhof þar sem Evrópu var skipt upp að lokinni seinni heimsstyrjöld.  Einnig heimsókn til Villa Wannsee þar sem forsvarsmenn nazista tóku ákvörðun um skjótvirkari útrýmingu Gyðinga.  Þá er komið við í Sans Soucci höll Friðriks mikla og fleira markvert.  Þessi dagsferð er valkvæð en lágmarksþátttaka er 20 manns.   Kvöldið frjálst.

31.ágúst   Brottför frá hótelinu kl 09:20 að loknum morgunverði.  Flogið heim með PLAY  kl 12:20 og áætluð lending  í Keflavík 14:00.

Verð er 184.800.-á mann í tveggja manna herbergi. Verð reiknað á núverandi gengi.  Innifalið er flug, gisting í 4 nætur með morgunverði, akstur til og frá flugvelli, gönguferðir, kvöldverður á komudegi á hótelinu auk þess kvöldverður á Hofbrauhaus, skoðunarferð í 4 klukkustundir um Berlín og íslensk fararstjórn.  Viðbótarverð fyrir eins manns herbergi  kr 43.000.-  Viðbótarkostnaður vegna dagsferðar til Potsdam er uþb kr 9.000.- pr mann.

Fararstjóri Lilja Hilmarsdóttir.

Áhugasamir sendið tölvupóst á: febg@febg.is.