Aðalfundur Félags eldri borgara í Garðabæ verður haldinn fimmtudaginn 26. febrúar kl. 13:30 í Jónshúsi félagsmiðstöð eldri borgara að Strikinu 6 í Garðabæ.

  • Dagskrá fundarins verður kynnt með síðara fundarboði sem auglýst verður á facebook síðu félagsins https://www.facebook.com/FelageldriborgaraGardabae og í Jónshúsi
  • Tillögur og erindi sem félagsfólk óskar eftir að leggja fram á fundinum skulu berast skriflega til skristofu FEBG á netfangið febg@febg.is minnst einni viku fyrir aðalfund.
  • Tillögur félagsmann um framboð til stjórnar skulu berast skrifstofu félagsins minnst einni viku fyrir aðalfund. Stjórnin gefur kost á sér til endurkjörs að undanskilum ritara félagsins sem mun víkja samkvæmt 5 ára reglu um setu í stjórn.
  • Tillögur um breytingar á lögum FEBG ef einhverjar eru, skulu berast til félagsins með minnst þriggja vikna fyrirvara þar sem að auglýsa þarf þær opinberlega með tveggja vikna fyrirvara.
  • Lög FEBG má finna á: https://febg.is/samthykktir-felagsins/