Aðalfundarboð  FEBG

Aðalfundur Félags Eldri borgara í Garðabæ fyrir árið 2024 verður haldinn

fimmtudaginn 6. mars kl. 14:00 í Jónshúsi félagsmiðstöð Eldri borgara að Strikinu 6 í Garðabæ.

Dagskrá fundarins;

  1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
  3. Ársreikningur lagður fram til umræðna og afgreiðslu.
  4. Fjárhagsáætlun næsta starfsárs kynnt.
  5. Ákvörðun árgjalds.
  6. Lagabreytingar.
  7. Kosningar:
  8. a) kosning formanns
  9. b) kosning fjögurra manna í stjórn
  10. c) kosning þriggja varamanna
  11. d) kosning tveggja skoðunarmanna ársreikninga FEBG og eins til vara, allra til eins árs.
  12. Önnur mál.

Á fundinum verða lagðar fram breytingar á lögum FEBG. Upplýsingar um lagabreytingar munu liggja frammi í Jónshúsi frá 20. febrúar.

Stjórn FEBG

PDF til að prenta út